Heim › ...
Fólk og flakk eftir Steingrímur J. Sigfússon - hljóðbók

Fólk og flakk

5 klst 45 mín
Bjartur

Um bókina

Á ferðum sínum um landið kynntist Steingrímur J. Sigfússon ótölulegum fjölda fólks, jafnt samherjum sem andstæðingum í pólitík. Hér rifjar hann upp eftirminnilegar sögur frá þessum ferðum og af Alþingi en allar einkennast þær af hlýju og húmor.

Í bókinni sprettur fram fólk sem varð goðsögn í lifanda lífi. Fólk og flakk er lifandi frásögn af veröld sem var, áður en farsímar og önnur nútímatæki einfölduðu öll samskipti; þegar landlínan, sendibréf, heimsóknir og fundir voru leiðin til að ná til fólks; þegar vísur flugu, menn tókust á í pontu en óku síðan saman á næstu samkomu í alls konar veðrum. Og maður var manns gaman.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán