
Flug í ókyrru lofti
Höfundur: Pétur J. Eiríksson
Flytjandi: Atli Rafn Sigurðarson
Um bókina
Pétur J. Eiríksson stóð í hringiðunni í 28 ár hjá Icelandair og segir hér opinskátt og hreinskilið frá því sem gerðist að tjaldabaki og gefur óvenjulega innsýn í rekstur Flugleiða, FL Group og síðan Icelandair Group. Ekkert nema kraftaverk virtist geta bjargað Icelandair og fátt blasti við nema gjaldþrot eftir viðvarandi offramboð og verðstríð á Norður-Atlantshafi. Með gamlar flugvélar, sem sjaldan flugu á réttum tíma, og úr sér gengna viðskiptahugmynd gat félagið lítið gert til að mæta þörfum viðskiptavina annað en að lækka fargjöld.
Félagið var komið í vítahring sem aðeins gat leitt til hins versta. Þetta er sagan af því hvernig tókst að skapa nýtt Icelandair og breyta einu versta flugfélagi Evrópu í eitt það besta, hvernig nýjar hugmyndir, nýjar flugvélar, nýtt leiðakerfi, nýir innviðir og ekki síst sterk samstaða og traust forysta gáfu okkur framúrskarandi flugfélag.
Þetta er sagan af ólgu og átökum og hvernig nýjar hugmyndir vekja upp andstæð sjónarmið svo að oft hriktir í stoðunum. Mjög áhugaverð bók fyrir þá sem hafa áhuga á viðskiptum, markaðsmálum og flugrekstri. Atli Rafn Sigurðarson les.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app