Heim › ...
Fjórða hæðin eftir Kristján Kristjánsson - hljóðbók

Fjórða hæðin

5 klst 1 mín
MTH ehf

Um bókina

"Eitthvað var öðruvísi en það átti að vera og ég áttaði mig ekki á hvað það var ..." Bræðurnir Heimir og Jóhann Svavar alast upp saman í bæ nyrst á Tröllaskaga, framtíðin virðist blasa við þeim en leyndarmál úr fortíðinni verður til þess að leiðir skilja. Margræð, spennandi og eftirminnileg saga um það hvernig sögumaðurinn grefur úr hugskoti sínu sannleikann um fortíðina.

„Skáldsaga Kristjáns Kristjánssonar er ákaflega vel heppnuð. Mikil natni er lögð í persónusköpun bræðranna, málnotkunin ríkulega raunveruleg. Bréf bræðranna eru til að mynda frábærlega gerð. Frásagnartæknin er þaulhugsuð og vel útfærð í alla staði þannig að útkoman verður átakamikil saga og listilega trúverðug lýsing þess tíma og staðar sem hún fjallar um.“ Ólafur Haraldsson, Pressunni.

„... lýsingin er hrífandi dramatísk, myndræn og nákvæm, með áherslu á breytileikann.“ Örn Ólafsson, DV.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán