
Fjarri hlýju hjónasængur - öðruvísi Íslandssaga
Höfundur: Inga Huld Hákonardóttir
Flytjandi: Eva María Jónsdóttir
Um bókina
Hvenær er ástin glæpsamleg? Hvaða skorður hafa henni verið settar um aldir? Hvaða sess skipaði hjónabandið, og hvaða refsingar voru við hórdómsbrotum og frillulífi? Þessi bók er réttnefnd öðruvísi Íslandssaga. Hún segir frá samskiptum kynjanna í Íslandi um aldir, í samfélagi þar sem kirkja og veraldlegt vald töldu sér ekkert mannlegt óviðkomandi.
Hér eru átakalegar sögur af þeim konum – og körlum – sem leyfðu sér að fara út fyrir viðurkennd mörk ástar og hjónabands. Í krafti þeirra frásagna verður bókin annað en sögulegt yfirlit, hún verður lifandi saga. Víða er leitað fanga, svo sem í annálum, lagasöfnum, skáldskap og æviminningum og hefur höfundi tekist að miðla geysimiklum fróðleik á einstaklega lipran og aðgengilegan hátt. Inga Huld Hákonardóttir var sagnfræðingur að mennt. Hún starfaði lengi sem blaðamaður og gaf út fjölda bóka. Fjarri hlýju hjónasængur kom upprunalega út hjá Máli og menningu árið 1992 og vakti þá mikla athygli og hlaut m.a. tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app