Heim › ...
Fiðrildafangarinn eftir Ann Cleeves - hljóðbók

Fiðrildafangarinn

Höfundur: Ann Cleeves

Flytjandi: Margrét Örnólfsdóttir

Þýðandi: Ragnar Hauksson

12 klst 39 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Líkfundur raskar friðsældinni í Dalbæ, litlu samfélagi í Norðymbralandi. Áður en langt um líður finnst annað lík. Það eina sem fórnarlömbin virðast eiga sameiginlegt er ástríða fyrir fiðrildum.

Þegar Vera Stanhope fer að að rannsaka málið kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist í Dalbæ. Þar reynast vera mörg leyndarmál sem íbúarnir vilja ekki að komist upp á yfirborðið – og sum þeirra bera dauðann í sér.

Bækur breska verðlaunahöfundarins Ann Cleeves um Veru Stanhope njóta mikilla vinsælda, ekki síst eftir gerð velheppnaðra sjónvarpsþátta. Þetta er sjötta bókin um Veru sem kemur út á íslensku.

Ragnar Hauksson þýddi.

„Frábær ... Snilldarlegur söguþráðurinn gerir það að verkum að ekki er hægt að leggja bókina frá sér.“ – The Indeependent

„Hinn mikli styrkur Cleeves sem rithöfundur felst í hrífandi stíl, sannfærandi persónusköpun og kraftmiklum söguþræði.“ – Crime Squad

„Ann Cleeves er fimur sögumaður sem kann að halda athygli lesandans ... Vald hennar á tungunni og hugvitssamleg tækni hennar við að segja sögu gera hana að einum allra snjallasta glæpasagnahöfundi samtímans.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán