
Fíasól er flottust
Höfundur: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Flytjandi: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Um bókina
Fíasól er flottust er fjórða bók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur um Fíusól, sem nú er orðin níu ára gömul. Sem fyrr býr hún með foreldrum og tveimur eldri systrum og er ákaflega uppátækjasöm. Bækurnar um Fíusól hafa verið sérlega vinsælar meðal barna og ekki að ósekju, því hér er blandað saman næstum fantastískum ævintýrum og hinu ofurhversdagslega, með dágóðum skammti af uppeldisyfirbragði - allt sett fram af hæfilegri alvöru.
Bækurnar um Fíusól eru næstum eins og einskonar smásagnasöfn, með sögum sem tengjast saman í eina heild, en bækurnar skiptast í nokkra kafla sem hver um sig segir frá einu uppátæki. Hér er til dæmis sagt frá skólaverkefni um drauga sem verður til þess að fjölskyldan fer að heimsækja draugasetrið með dramatískum afleiðingum - ekki síst fyrir pabba Fíusólar. Fíasól er mikil útivistarmanneskja og útilegur koma nokkuð við sögu.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app





