Heim › ...
Félagsskapur kátra kvenna eftir Alexander McCall Smith - hljóðbók

Félagsskapur kátra kvenna

7 klst 35 mín
Forlagið

Um bókina

Í þessari sjöttu bók um Kvenspæjarastofu númer eitt er Precious Ramotswe undir miklu álagi. Brotist er inn á heimili hennar á Zebra Drive og dularfullt grasker á lóðinni veldur henni áhyggjum. Á Tlokweng spíttmótorum verður uppi fótur og fit þegar annar lærlingurinn stingur af með konu á stórum Mercedes-Benz. En það sem fyrst og fremst setur allt á annan endann hjá Mma Ramotswe er þegar óboðinn gestur grefur upp sársaukafullt leyndarmál úr fortíðinni.

Bækur Alexanders McCall Smith um Kvenspæjarastofu númer eitt hafa farið sigurför um heiminn, enda einstakar sögur sem hafa að geyma sjaldgæfa blöndu af spennu, gamansemi og mannúð. Þær hafa nú selst á íslensku í nærri 30 þúsund eintökum. Áður hafa komið út á íslensku í þessum flokki Kvenspæjarastofa númer eitt, Tár gíraffans, Siðprýði fallegra stúlkna, Kalaharí-vélritunarskólinn fyrir karlmenn, og Fullur skápur af lífi. Hér sem áður í leiftrandi lestri Dominique Sigrúnardóttur.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán