Heim › ...
Faðir Brown úrval eftir G.K. Chesterton - hljóðbók

Faðir Brown úrval

Höfundur: G.K. Chesterton

Flytjandi: Jóhann Sigurðarson

Þýðandi: Guðmundur J

6 klst 46 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Átta smásögur um prestinn snjalla og ráðagóða. Faðir Brown hefur lengi verið einn ástsælasti einkaspæjari enskra glæpasagnabókmennta. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið snemma á 20. öld en hefur gengið í endurnýjun lífdaganna í skemmtilegum sjónvarpsþáttum á upphafsárum 21. aldar. Þessi kaþólski sveitaprestur er góðlegur ásýndum og lætur lítið yfir sér. Sposkur á svip sinnir hann sóknarbörnum sínum af samúð og virðingu.

En undir hæglátu yfirbragði prestsins býr næmur skilningur á mannlegu eðli, ekki síst hinum myrku hliðum þess. Með skörpu innsæi sínu og hljóðlátum vitsmunum leysir faðir Brown iðulega flókin sakamál sem reyndustu lögregluforingjar standa ráðþrota frammi fyrir.Guðmundur J. Guðmundsson þýddi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán