
Um bókina
„Þrátt fyrir stanslausar drunurnar í eldsumbrotunum, sírenuvælið og köllin í gjallarhorninu voru allir rólegir og hjálpsamir. Jafnvel þó að gereyðandi eldtungur færu um bæinn.“
Eldgosið í Heimaey árið 1973 er í algleymingi og þrjú systkini frá Eyjum eru send í fóstur vestur á firði. Fimmtíu árum síðar snýr eitt þeirra aftur og um svipað leyti finnast mannabein á Dynjandisheiði. Bergur er settur í málið en nýtur aðstoðar Rögnu á bak við tjöldin. Hverjum tilheyra beinin og af hverju virðist eldri kynslóðin í lögreglunni á Ísafirði treg til að rannsaka málið af fullum þunga?
Eldur í öskunni leynist er fjórða bók Margrétar S. Höskuldsdóttur og þriðja sagan um lögregluteymið Rögnu og Berg. Önnur sagan, Lokar augum blám, hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin árið 2025.
Hvernig virkar þetta?
- 1Kauptu bókina
Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu
- 2Sæktu Sagnaland appið
Fáanlegt í App Store og Google Play
- 3Lestu hvar sem er
Bókin birtist í bókahillunni þinni
Sækja app