Heim › ...
Eldum björn eftir Mikael Niemi - hljóðbók

Eldum björn

Höfundur: Mikael Niemi

Flytjandi: Arnar Jónsson

Þýðandi: Ísak Harðarson

14 klst 25 mín
Mál og menning

Um bókina

Sumarið 1852 varð örlagaríkt í þorpinu Kengis, nyrst í Svíþjóð. Samíski pilturinn Jussi gengur um skóginn með prestinum, húsbónda sínum, sem les náttúruna eins og opna bók og hefur alið Jussa upp og miðlað honum af þekkingu sinni. Smalastúlkan Hilda er horfin og talið er að grimmur björn hafi grandað henni. Þegar lík Hildu finnst illa leikið sannfæra verksummerki prestinn um að enginn ferfætlingur hafi orðið henni að bana … Og svo fjölgar fórnarlömbunum, hjátrú og fordómar ná yfirhöndinni og andrúmsloftið verður sífellt myrkara.

Mikael Niemi sló í gegn með skáldsögunni Rokkað í Vittula sem kom út víða um heim og naut mikilla vinsælda. Hér leitar hann á vit sögunnar, skrifar um grasafræðinginn og trúarleiðtogann Lars Levi Læstadius og gerir hann að eins konar Sherlock Holmes. Eldum björn er einstaklega heillandi saga sem hefur fengið frábærar viðtökur og kemur hér í meistaralegri þýðingu Ísaks Harðarsonar og einstökum lestri Arnars Jónssonar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr