Heim › ...

Um bókina
Veturinn 1987 sigldi lítið skip undir fölsku flaggi inn í Gulahaf. Um borð voru sjö menn, ráðnir af bandarísku leyniþjónustunni til að ferja sérlega viðkvæman og mikilvægan farm til Bandaríkjanna, og í stafni stóð Íslendingur. Lífshlaup vélstjórans Birgis Þórs Helgasonar er lyginni líkast. Hann lék mikilvægt hlutverk í varnarmálum Vesturlanda í algerri kyrrþey en hér segir hann ævisögu sína, af sjóskaða, bróðurmissi og að sjálfsögðu eldflaugaförinni, í fyrsta skipti.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir. Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.