Heim › ...

Ekki vera sár
Höfundur: Kristín Steinsdóttir
Flytjandi: Kristín Steinsdóttir
5 klst 11 mín
Vaka-Helgafell
Um bókina
Allt sitt líf hefur Imba verið á þönum en nú er hún komin á eftirlaun, frí og frjáls. Börnin eru flogin, skyldurnar að baki og nýtt æviskeið fram undan. Loksins gefst tími til að láta draumana rætast. En eiginmaðurinn á líka sína drauma, kannski ekki þá sömu og hún . . .
Ekki vera sár er uppgjör konu á krossgötum. Með eftirsjá hugsar hún um árin sem liðu hjá og tækifærin sem hún greip ekki – en skyldi hún vera reiðubúin að standa á sínu núna? Getur hugsast að ný tækifæri bíði handan við hornið?
Kristín Steinsdóttir er margrómuð og verðlaunuð sagnakona og hefur skrifað á fjórða tug bóka. Skáldsögur hennar hafa hlotið mikið lof heima og erlendis.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app