
Einn góðan veðurdag fer ég frá honum
Um bókina
Þetta er frásögn mín af því að vera í stormasömu og lífshættulegu ástarsambandi þar sem sveiflurnar milli ástar, losta, vonar og djúprar örvæntingar urðu til þess að ég missti tökin á mínu eigin lífi og lífum barnanna minna. Frá fyrstu stundu átti þessi maður hug minn allan, hann krafðist óskiptrar athygli minnar og lét mig aldrei í friði þar til hann varð hluti af lífi mínu. Alltof lengi.
Það sem er óeðlilegt varð eðlilegt. Þetta er líka sagan af því hvernig ég áttaði mig loksins á að ég var að verða eins og hann. Þá var aðeins ein leið fær og það var burt. Burt frá honum. Lögreglan kom og sótti hann dag einn þegar ég kærði hann í mitt fyrsta og eina skipti. Þann dag hófst líf mitt fyrir alvöru.
En það var líka þá sem vinir mínir sneru við mér baki. Hún lýgur! Svona indælismaður getur ekki hafa gert það sem hún segir að hann hafi gert.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app