Heim › ...
Ein á forsetavakt: Dagar í lífi Vigdísar Finnbogadóttur eftir Steinunn Sigurðardóttir - hljóðbók

Ein á forsetavakt: Dagar í lífi Vigdísar Finnbogadóttur

4 klst 51 mín
Forlagið

Um bókina

Þegar Vigdís Finnbogadóttir varð forseti Íslands árið 1980 hafði engin kona áður verið lýðræðislega kjörin í embætti þjóðhöfðingja – hvergi um víða veröld. Ekki nóg með það, heldur þótti afar sérstakt að ógift kona og einstæð móðir gegndi slíku embætti.

Ein á forsetavakt eftir Steinunni Sigurðardóttur kom fyrst út haustið 1988 og vakti geysimikla athygli, enda fengu landsmenn þar í fyrsta sinn innsýn í dagleg störf forsetans.

Í bókinni lýsir Steinunn af einstöku innsæi sjö dögum í lífi Vigdísar: ferðalögum utanlands og innan, gestaboðum og samkomum, skrifstofustússi, uppeldi og stopulum frístundum. Um leið er skyggnst undir yfirborðið og Vigdís viðrar hugleiðingar sínar um hlutverk þjóðhöfðingjans og þau fjölbreyttu verkefni sem því fylgja.

Bókin var endurútgefin árið 2020, lítillega endurskoðuð og með nýjum formála og eftirmála höfundar, í tilefni þess að 90 ár voru liðin frá fæðingu Vigdísar og 40 ár frá því að hún var kjörin forseti Íslands. Hér í lestri höfundar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.290 kr