Heim › ...
Ég var kynlífsambátt trúarleiðtogans eftir Lydia Hadjara - hljóðbók

Ég var kynlífsambátt trúarleiðtogans

5 klst 2 mín
Lind & Co

Um bókina

Lydia var ekki nema fjögurra ára þegar hún komst fyrst í kynni við Raël-söfnuðinn. Móðir hennar var áköf fylgiskona Raëls og dró hana inn í hreyfingu sem varð að lífi ungu stúlkunnar næstu tuttugu árin.

Fyrir Lydiu lá leiðin til helvítis, þegar hún var aðeins 13 ára nauðgaði áhrifamikill maður í hreyfingunni henni og sagði að hann væri að undirbúa hana fyrir Raël sjálfan. Stuttu síðar varð hún í „uppáhaldi“ hjá gúrúnum. Hún varð ambáttin hans sem þjónaði honum, vann húsverk og uppfyllti sérhverjar kynferðislegar þarfir hans. Lydia bjó í litlu, afskekktu þorpi í Sviss, hún átti enga peninga og hafði enga þekkingu á umheiminum en fór smátt og smátt að átta sig á því hversu mikið hún hafði verið heilaþvegin.

Þegar hún var 25 ára tókst henni loksins að flýja. Líf þessarar ungu konu var í rúst, hún var einsömul og ráðvillt en hafði þó loks öðlast frelsi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán