Heim › ...
Ég skal hjálpa þér - Saga Auríar eftir Árný Aurangasri Hinriksson og Herdís Magnea Hübner - hljóðbók

Ég skal hjálpa þér - Saga Auríar

8 klst 56 mín
Vaka-Helgafell/Forlagið

Um bókina

Auri Hinriksson á að baki merkilegan lífsferil en hún er þekktust fyrir að hafa aðstoðað fólk ættleitt frá Srí Lanka að finna líffræðilega foreldra sína og fjölskyldu. Auri er fædd í Colombo á Srí Lanka en flutti fertug til Ísafjarðar með eiginmanni sínum, Þóri Hinrikssyni, og fimm ára syni.

Í þessari áhugaverðu ævisögu, sem rituð er af Herdísi Magneu Hübner, segir Auri frá uppruna sínum, vinnu fyrir stofnanir Sameinuðu þjóðanna sem leiddi hjónin saman og frá lífi víða um lönd en auk Íslands og Srí Lanka, bjó fjölskyldan um tíma á Indlandi, Barein og í Íran. Saga Auriar er einstök frásögn af kjarkmikilli konu sem lætur ekki brjóta sig niður, heldur rís alltaf upp og blómstrar mitt í mótlætinu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán