
Ég átti að heita Bjólfur: Æskuminningar
Höfundur: Jón Ársæll Þórðarson
Flytjandi: Jón Ársæll Þórðarson
Um bókina
Sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Jón Ársæll Þórðarson, segir hér sögur úr æsku sinni og rifjar upp veröld sem var, oft á kíminn og persónulegan hátt. Hér er á ferðinni þroskasaga drengs þar sem segir frá uppvaxtarárunum austur á fjörðum, sveitinni í Jökulsárhlíð, síldinni, sjómennsku, mótunarárunum við Skerjafjörðinn, grásleppuútgerð, heimabruggi og mörgu fleira sem rifjað er upp á síðum bókarinnar.
Í bókinni fjallar Jón Ársæll á sinn einstaka hátt um merkilega viðburði í sögu lands og þjóðar og segir frá þekktu fólki sem setti mark sitt á samtímann, fólki til sjávar og sveita sem og þeim sem hafa tveggja heima sýn.
Hvernig virkar þetta?
- 1Kauptu bókina
Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu
- 2Sæktu Sagnaland appið
Fáanlegt í App Store og Google Play
- 3Hlustaðu hvar sem er
Bókin birtist í bókahillunni þinni
Sækja app