
Um bókina
Eftir tíu ára afmælið getur Kristín Katla loksins keypt sér dúkkuna sem allar stelpur eru með æði fyrir. Henni er alveg sama þótt Pétur tvíburabróðir hennar geri grín að henni – þetta er dúkka fyrir stórar stelpur.
En af hverju finnst honum dúkkan óþægileg? Er hún ekki eins blíð og góð og stelpurnar halda? Dúkka er spennandi saga fyrir lesendur frá átta ára aldri sem fær hárin til að rísa í hnakkanum. Linda Ólafsdóttir myndskreytti. Gerður Kristný hlaut Vestnorrænu barna- og unglingabókaverðlaunin og Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir hryllingssöguna Garðinn og Bókaverðlaun barnanna fyrir Mörtu smörtu, en hefur einnig hlotið mikið lof og viðurkenningar fyrir skáldskap sinn fyrir fullorðna. Hún fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ljóðabókina Blóðhófni.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app