
Duft: söfnuður fallega fólksins
Höfundur: Bergþóra Snæbjörnsdóttir
Flytjandi: Svandís Dóra Egilsdóttir
Um bókina
Prins var enn einu sinni farinn yfir í næsta líf og skildi ekkert eftir sig nema skelina. Nú lá hann innpakkaður í grænt flísteppi með tyggigúmmíbleikan varalit og ljósan augnskugga í kringum innfallin augun. Glitrandi glimmer í kinnunum. Stjörnustrákur.
Nú ertu orðinn fallegur aftur, muldraði ég og virti fyrir mér höfundarverk mitt.
Þannig hefst skáldsagan Duft sem segir frá Veróniku, einkadóttir vellauðugra líkamsræktarfrömuða á Íslandi og lífi fjölskyldu sem er heltekin af yfirborðinu. En það sem marir undir seytlar samt óhjákvæmilega í gegn.
Duft spinnur margslunginn vef um líf Veróniku og fjallar um líkindi truflaðrar fjölskyldu við sértrúarsöfnuð. Hvernig venjulegt fólk kemur sér í óvenjulegar aðstæður.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app