Heim › ...
Drengurinn í kjallaranum eftir Stephen Smith - hljóðbók

Drengurinn í kjallaranum

9 klst 6 mín
Lind & Co

Um bókina

Stephen var falinn í kjallara í þrettán ár. Hann fæddist utan hjónabands í upphafi sjöunda áratugar síðustu aldar og foreldrar hans læstu hann inni og héldu honum leyndum. Veröld litla drengsins takmarkaðist við dimmt herbergi með einföldu bráðabirgðarúmi, nakinni ljósaperu í loftinu og borði. Hann var bæði sveltur og barinn. Stephen varði dögunum í að töfra fram ímyndaðan heim fullan af skrímslum sem hann teiknaði til að reyna að bæla niður sársaukann sem hlaust af líkamlegum og andlegum pyntingum sem grimmur faðir hans beitti hann.

Fyrir utan nokkrar sjúkrahúsinnlagnir vegna líkamlegra áverka dvaldi Stephen í kolakjallara fjölskylduheimilisins þar sem hann var sviptur bernskunni, dagsbirtu, skóla og mannlegum samskiptum þar til hann komst á unglingsár. Að lokum slapp hann úr prísundinni en þá tók ekki betra við þegar hann varð fórnarlamb ofbeldismanna á Aston Hall sjúkrahúsinu og í kaþólska skólanum St. William’s. Báðir staðirnir eru dæmi um verstu tilvik ofbeldis og misnotkunar á stofnunum sem hafa komið upp á yfirborðið í Bretlandi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán