Heim › ...
Drekatár eftir Dean Koontz - hljóðbók

Drekatár

15 klst 43 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Lögreglumaðurinn Harry Lyon er með báða fætur á jörðinni. Hann vill leysa öll mál með skynsemi og rökvísi að leiðarljósi. Dag einn neyðist hann til að skjóta mann. Í sama mund stendur óhugnanlegur útigangsmaður fyrir framan hann og endurtekur í sífellu orð sem ásækja Harry svo fast að hann er við það að missa vitið: „Tikk-takk, tikk-takk.

Eftir sextán klukkustundir verður þú dauður! ... Tikk-takk ... Dauður fyrir dögun ... Dauður fyrir dögun.“ Við tekur æsileg atburðarás þar sem Harry reynir í kapp við tímann að koma í veg fyrir að áhrínsorðin rætist. Dean Koontz er einn þekktasti spennusagnahöfundur heims. Bækur hans hafa selst í yfir 500 milljónum eintaka og verið þýddar á um 40 tungumál. „Frábær saga ... Metnaðarfyllsta bók Dean Koontz.“ – Columbus Dispatch „Magnaður endir.“ – People „Lýsingar Koontz minna á Dickens og fáir skáldsagnahöfundar standast honum snúning í að fá okkur til fletta í ofvæni frá einni blaðsíðu til þeirrar næstu.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán