Heim › ...
Dansað við engil eftir Åke Edwardsson - hljóðbók

Dansað við engil

Höfundur: Åke Edwardsson

Flytjandi: Stefán Hallur Stefánsson

Þýðandi: Sigrún Á

11 klst 48 mín
Mál og menning

Um bókina

Ungur Svíi finnst myrtur á hótelherbergi í London. Skömmu síðar á svipað morð sér stað í Gautaborg. Blóðug fótspor á seinni morðstaðnum benda til að þar hafi verið stiginn óhugnanlegur dans. Þegar lögreglumaðurinn Erik Winter fer að rannsaka morðin kemur ýmislegt sérkennilegt í ljós og málin taka óvænta stefnu ...

Dansað við engil er grípandi, kraftmikil og spennandi saga sem veitir um leið einstaka innsýn í myrkan heim sem fáir þekkja. Hér í frábærum lestri Stefáns Halls Stefánssonar.

Åke Edwardson er einn þekktasti glæpasagnahöfundur Svía. Bækur hans hafa hlotið fjölda verðlauna og verið þýddar á fjölmörg tungumál. Dansað við engil var valin besta glæpasaga ársins í Svíþjóð. Bókin hefur slegið í gegn víða um heim og gerð hefur verið kvikmynd eftir sögunni.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr