Heim › ...
Dagar mínir í Morisaki bókabúðinni eftir Satoshi Yagisawa - hljóðbók

Dagar mínir í Morisaki bókabúðinni

4 klst 44 mín
Mál og menning

Um bókina

Þegar Takako missir í einu vetfangi kærastann, vinnuna og trúna á sjálfa sig, býðst henni óvænt skjól hjá sérvitringnum frænda sínum í lítilli fornbókabúð í Tókýó. Jimbocho-hverfið iðar af lífi, ágeng kryddangan er í loftinu og neonljós borgarinnar flökta stöðugt en í Morisaki-bókabúðinni opnast annar heimur – kyrrlátur, hlýr og fullur af sögum. Þar hefst heillandi ferðalag sem á eftir að umbreyta lífi Takako.

Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni er seiðandi saga um vináttu sem sprettur á ólíklegustu stöðum, sérkennilega fastagesti og ómótstæðilega japanska menningu.

Satoshi Yagisawa hlaut verðskuldaða athygli fyrir þessa hrífandi sögu sem hefur komið út víða um heim og var kvikmynduð í Japan.

Uggi Jónsson þýddi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán