Heim › ...
Brúin yfir Tangagötuna eftir Eiríkur Örn Norðdahl - hljóðbók

Brúin yfir Tangagötuna

7 klst 10 mín
Forlagið

Um bókina

Það er vinnslustopp í rækjunni, gatan sundurgrafin og bærinn alltaf fullur af forvitnum túristum af nýju og nýju skemmtiferðaskipi. Ef ekki væri fyrir nágrannakonuna handan við brúna væri líf Halldórs ansi dapurlegt.

En þótt það séu bara níu og hálft skref úr anddyrinu hans að dyrunum hennar er leiðin þangað furðulega flókin. Brúin yfir Tangagötuna er ísfirsk ástarsaga úr samtímanum eftir Eirík Örn Norðdahl. Hann hefur áður sent frá sér skáldsögur, ljóð og matreiðslubók, auk fjölda greina og pistla um bókmenntir og menningarmál.

Fyrir skáldsöguna Illsku hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin og Menningarverðlaun DV fyrir ljóðabókina Óratorrek. Bækur hans vekja jafnan athygli og hafa verið þýddar á fjölda tungumála.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 2.990 kr