
Um bókina
Framsækin skáldsaga um óvæntan brúðkaupsgest og fólkið sem hjálpar henni að byrja upp á nýtt.
Það er fallegur dagur í Newport, Rhode Island þegar Phoebe Stone kemur á hið stórfenglega Cornwall hótel í grænum kjól og gylltum hælaskóm, farangurslaus og alein. Starfsfólk og hótelgestir gera ráð fyrir að hún sé ein af brúðkaupsfólkinu en hún er reyndar eini gesturinn á hótelinu sem er ekki mættur til að taka þátt í stóra viðburðinum. Phoebe er hingað komin af því að hana hefur dreymt um það í mörg ár – dreymt um að borða ostrur og sigla í sólarlaginu með eiginmanni sínum. En nú er hún hér án eiginmannsins, algjörlega á botninum, harðákveðin í að splæsa yfirgengilega í sjálfa sig, í síðasta sinn. Á sama tíma hefur brúðurin hugsað fyrir hverju einasta smáatriði og öllu sem farið gæti úrskeiðis þessa helgi, öllu nema Phoebe og fyrirætlunum hennar – sem gerir böndin sem þær tengjast enn sérstakari.
Skáldsaga ársins 2024 á Goodreads
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app