Heim › ...
Bretarnir koma eftir Þór Whitehead - hljóðbók

Bretarnir koma

10 klst 59 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Hernámsnóttin 10. maí 1940 er ein áhrifamesta nótt Íslandssögunnar. Íslendingar drógust inn í átök heimsstyrjaldarinnar og þjóðlífið umturnaðist á skömmum tíma. Í þessari bók er þessi örlagasaga sögð í fyrsta sinn frá sjónarhóli allra þátttakenda.

-- Söguleg handtaka þýska ræðismannsins og SS-foringjans Gerlachs.

-- Orðrómur á Austurfjörðum sem blandaðist inn í einn mesta harmleik breska flotans á stríðsárunum.

-- Ráðagerðir Hitlers um að hrifsa Ísland úr höndum Breta og innlima það í Þriðja ríkið.

-- Víðtæk njósnastarfsemi Breta og Bandaríkjmanna á Íslandi.

-- „Svarti listinn“, sem njósnaforingjar bandamanna gerðu til undirbúnings handtökum á tæplega 700 meintum andstæðingum hérlendis, er hér birtur í fyrsta sinn.

Bretarnir koma byggist á ógrynni íslenskra og erlendra skjala sem leynd hvíldi lengi yfir í söfnum. Saman við þessar heimildir fléttast frásagnir frá hundruðum heimildarmanna og sjónarvotta.

Bækur Þórs Whitehead um Ísland í síðari heimsstyrjöld hafa notið einstakra vinsælda. Frásögn Þórs er lifandi og á köflum mjög spennandi án þess að slakað sé á fræðilegum kröfum. Árið 1996 hlaut Þór Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina Milli vonar og ótta.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán