
Brennu-Njáls saga
Um bókina
Brennu-Njáls saga er þekktasta Íslendingasagan og jafnframt sú lengsta. Þetta er saga Njáls Þorgeirssonar bónda, höfðingja og lögspekings á Bergþórshvoli í Vestur-Landeyjum og sona hans einkum þá Skarphéðins. Auk þess er Njála, eins og sagan er oftast kölluð, ævisaga Hallgerðar langbrókar Höskuldsdóttur og eiginmans hennar Gunnars Hámundarssonar á Hlíðarenda. Njála er frábærlega vel skrifuð bók.
Í þessar útgáfu hefur hún verið færð til nútímalegra máls af Hauki Svavarssyni, Cand. Mag. í íslenskum fræðum, sem kenndi bókina um langt árabil í framhaldsskóla. Auðveldar þessi breyting mjög hlustun á sögunni og færir hana mun nær hlustandanum. Fjöldi persóna sem koma við sögu í Njálu skiptir hundruðum. Mannlýsingar eru sérlega glöggar og getur lesandinn oftast séð persónuna fyrir sér í mögnuðum lestri Stefáns Halls Stefánssonar leikara. Njála gerist á milli áranna 950 og 1020. Talið er víst að margt af því sem sagan greinir frá hafi í raun og veru gerst nokkurnvegin eins og því er lýst sem og að persónurnar sem fjallað er um hafi raunverulega verið uppi á þessum tíma.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app