Heim › ...
Brandarabíllinn eftir Sváfnir Sigurðarson - hljóðbók

Brandarabíllinn

1 klst 58 mín
Salka

Um bókina

Lífið gengur sinn vanagang í Bjarkarey í Norðanhafi. Matti er í pössun hjá Hagbarði vitaverði á meðan foreldrar hans ferðast um með sirkusnum. Allt er með kyrrum kjörum þar til að uppfinningakonan Katarína Kristrós kemur í heimsókn á undarlegum bíl sem gengur ekki fyrir eldsneyti, heldur bröndurum. Matti og hundurinn Hringur leggja óvænt, og alveg óvart, upp í ævintýraferð um eyjuna þvera og endilanga og lenda í alls konar hremmingum.

Á leiðinni kynnast þeir Hönnu Stínu sem er bæði drepfyndin og hugrökk sem er ekki endilega góð uppskrift þegar kemur að brandarabílum. Amma Lena bætist svo í hópinn og ferðalagið tekur heldur betur óvænta stefnu. Brandarabíllinn er fyrsta bókin í sprenghlægilegum bókaflokki eftir Sváfni Sigurðarson.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 2.990 kr