Heim › ...

Um bókina
Besta íslenska glæpasaga ársins 2020! Björgunarsveitir eru sendar inn í Lónsöræfi í leit að hópi fólks sem er saknað. Hvaða erindi áttu þau í óbyggðir um hávetur? Af hverju yfirgáfu þau það litla skjól sem þau höfðu, illa búin og berskjölduð?
Á sama tíma gerast undarlegir atburðir á ratsjárstöðinni á Stokksnesi. Og á nesinu er gat í sjávarklöpp sem sogar til sín fólk... Hér er ekki allt sem sýnist, hvort sem það er blóðblettur í snævi þöktu landslagi fjarri mannabyggðum, truflanir á ratsjá – eða barnsskór sem kemur óvænt fram áratugum eftir að hann hvarf. Bráðin hlaut Blóðdropann 2021 sem besta íslenska glæpasaga ársins 2020.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app