Heim › ...
Borg hinna dauðu eftir Stefán Máni - hljóðbók

Borg hinna dauðu

16 klst 15 mín
Sögur útgáfa

Um bókina

Föstudagskvöld nokkurt í september yfirgefur hin nítján ára gamla Sigríður Bella Ólafsdóttir heimili sitt við Dragaveg í Reykjavík. Hún segir engum hvert hún er að fara. Þegar hún skilar sér ekki aftur heim hringja foreldrar hennar á lögregluna. Það er eins og jörðin hafi gleypt dóttur þeirra.

Tuttugu árum síðar finnast mannabein við uppgröft í húsagarði í austurbænum. Hörður Grímsson fer með rannsókn málsins. Í ljós kemur að um líkamsleifar Sigríðar Bellu er að ræða og hrollvekjandi staðreyndir benda til þess að hún hafi verið myrt á vofeiflegan hátt. Það litla sem lögreglan hefur í höndunum um hvarf stúlkunnar á sínum tíma er illa unnin rann­sóknarskýrsla.

Fljótlega beinast grunsemdir lögreglunnar að ákveðnum einstaklingi en sannanir skortir og fara þarf að öllu með gát því hann má alls ekki fá veður af rannsókninni. Hörður óttast að morðinginn sé ekki hættur og hafi þegar valið sitt næsta fórnarlamb. Lögreglan leggur nótt við dag við rannsókn málsins, enda er tíminn senn á þrotum og mannslíf í húfi.

Hörður Grímsson er án efa ein allra vinsælasta skáldsagnapersóna samtímans. Borg hinna dauðu er ellefta bók Stefáns Mána um þennan sérlundaða lögreglumann. Í bókinni sýnir Hörður enn og aftur á sér nýjar hliðar og spennan er yfirþyrmandi frá upphafi til enda.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán