
Bölvunin
Um bókina
Leonarda Cianciulla bjó við hræðilegar aðstæður í æsku. Á unga aldri reyndi hún tvívegis að fyrirfara sér. Eftir margra ára misnotkun flýði hún í fang Raffaeles Pansardi og giftist honum. En móðir hennar þoldi ekki ráðahaginn og lagði bölvun á hjónabandið. Leonarda trúði því að bölvun móður hennar væri raunveruleg. Líf hennar varð í kjölfarið samfelld harmsaga: Hún þjáðist af flogaveiki, var dæmd í fangelsi fyrir fjársvik, missti heimili sitt í jarðskjálfta og sá á eftir tíu börnum sem öll veiktust í æsku og dóu.
Þegar Giuseppe, elsti sonurinn, sagðist ætla að ganga í herinn við upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari taldi Leonarda sér trú um að eina leiðin til að vernda hann væri mannfórn . . . Bölvunin er hrollvekjandi frásögn af einu sérkennilegasta og hrottafengnasta glæpamáli sögunnar, sögð á kraftmikinn og lifandi hátt eins og bestu spennusögur.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app