Heim › ...
Böðulskossinn eftir Mons Kallentoft - hljóðbók

Böðulskossinn

Höfundur: Mons Kallentoft

Flytjandi: Tinna Hrafnsdóttir

Þýðandi: Jón Þ

9 klst 9 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Malin Fors er komin aftur til Linköping eftir viðburðaríkan tíma í Bangkok. Hún er varla búin að koma sér fyrir þegar flugvöllurinn í Linköping verður vettvangur stærstu gíslatöku í sögu Svíþjóðar. Malin og samstarfsmenn hennar standa frammi fyrir þeirri siðferðilegu spurningu hvort réttlætanlegt sé að fórna fáum mannslífum í von um að bjarga mörgum. Um sumarið skellur á grimmileg ofbeldisalda í Linköping. Malin og félagar eltast við morðingja sem virðist alltaf vera skrefi á undan ...

Mons Kallentoft er einn af þekktustu rithöfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors, lögregluforingja í Linköping, hefur notið mikilla vinsælda víða um lönd. Böðulskossinn er ellefta bókin um Malin Fors en hinar tíu — Sumardauðinn, Haustfórn, Vetrarblóð, Vorlík, Fimmta árstíðin, Englar vatnsins, Sálir vindsins, Moldrok, Brennuvargar og Vítisfnykur — hafa selst í milljónum eintaka og verið þýddar á hátt í 30 tungumál.

„Ein allra besta bók Kallentofts.“ – Crimegarden „Kallentoft kann þá list að búa til spennandi söguþráð og hér bregst honum ekki bogalistin.“ – Ölandsbladet „Kallentoft er einn allra besti glæpahöfundur samtímans. Kannski hefur hann aldrei verið betri en í þessari bók?“ – DAST Magazine „... spennandi, hröð og áhrifamikil ...“ – Johannas deckarhörna „Þétt og æsispennandi glæpasaga ... Þetta er ellefta bókin í Malin Fors-seríunni og enn sömu gæði og í þeim fyrstu. Ég bíð óþreyjufull eftir bók númer tólf.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán