Heim › ...
Blómamánamorðin eftir David Grant - hljóðbók

Blómamánamorðin

Höfundur: David Grant

Flytjandi: Arnar Jónsson

Þýðandi: Herdís M

10 klst 10 mín
Bókafélagið

Um bókina

Blómamánamorðin er æsispennandi sakamálasaga byggð á sönnum atburðum. Í Osage-sýslu í Oklahoma bjó auðugasti hópur fólks í heimi á þriðja áratug 20. aldar. Ástæðan var olía. Eftir að olía fannst undir landi Osage-indíána urðu þeir vellauðugir. Innan skamms tóku þeir þó að falla einn af öðrum fyrir morðingjahendi.

Þegar fórnarlömbunum hélt áfram að fjölga tók hin nýstofnaða Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) málið upp undir stjórn hins unga og dulráða forstjóra hennar, J. Edgars Hoovers. Unnið er að gerð kvikmyndar sem byggist á þessari bók og verður frumsýnd árið 2021. Leikstjóri hennar er Martin Scorsese og leikur Leonardo DeCaprio aðalhlutverkið í myndinni. Þessi bók, Blómamánamorðin, er byggð á margra ára rannsóknum og óvæntum nýjum heimildum. Hún er meistaralegt sagnfræðiverk þar sem hvert skref í rannsókninni opinberar mörg leyndarmál og sviptingar.

Frásögnin um Blómamánamorðin er algjörlega óyggjandi en einnig tilfinningalega átakanleg. Höfundur bókarinnar, David Grann, hefur verið hlaðin lofi. Það er Arnar Jónsson leikari sem les bókina á sinn meistaralega hátt.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán