Heim › ...
Blóðberg eftir Þóra Karítas Árnadóttir - hljóðbók

Blóðberg

5 klst 1 mín
Forlagið

Um bókina

Árið 1608 sver ung stúlka í Skagafirði, Þórdís Halldórsdóttir, eið um að hún sé hrein mey eftir að upp kemur kvittur um ástarsamband hennar við mág sinn en slíkt var dauðasök á tímum stóradóms. Fimm mánuðum síðar fæðir hún barn. Þórdís má lifa með ásökunum um blóðskömm og í trássi við landslög er henni gert að sæta pyntingum segi hún ekki til barnsföður síns.

Á hverju ári ríður hún suður heiðar til að mæta fyrir Alþingi á Þingvöllum en heill áratugur líður þar til dómur er kveðinn upp. Þóra Karítas Árnadóttir hefur starfað við skrif, leikhús og sjónvarpsþáttagerð. Árið 2015 sendi hún frá sér sannsöguna Mörk – saga mömmu sem hlaut góðar viðtökur lesenda. Blóðberg er fyrsta skáldsaga hennar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 3.990 kr