
Blekkingin
Höfundur: Camilla Läckberg, Henrik Fexeus
Flytjandi: Þórunn Erna Clausen
Þýðandi: Sigurður Þór Salvarsson
Um bókina
Blekkingin er hörkuspennandi saga eftir glæpasagnadrottninguna Camillu Läckberg og sjáandann Henrik Fexeus. Hún er sjálfstæður hluti af hinum geysivinsæla þríleik um lögreglukonuna Minu og sjáandann Vincent.
Það er desember í Stokkhólmi og dómsmálaráðherra Svíþjóðar berast hótanir. Á sama tíma finnast mannabein niðri í jarðlestargöngum Stokkhólms. Í ljós kemur að þau eru af valdamiklum manni í viðskiptalífinu. Rannsóknarteymi Minu Dabiri lögreglumanns er laskað eftir hörmulega atburði sumarsins sem leiddu til andláts eins úr hópnum. Sjáandinn Vincent Walder er því fenginn til að aðstoða við rannsókn málsins.
Vincent finnst eins og heimur hans sé smátt og smátt að hrynja. Þegar fleiri bein finnast í lestargöngunum reynir enn og aftur á teymið – hvað gengur á í jarðgöngunum langt undir yfirborði Stokkhólms? Og hver ofsækir ráðherrann?
Æsispennandi atburðarás í þríleik Läckberg & Fexeus.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app