
Björninn Bergur og Örvæntingarskógurinn - Saga um sorg
Höfundur: Christina van Deventer
Flytjandi: Bragi Þór Valsson
Um bókina
Þegar móðir Bergs fær boðskort til Himnaríkis verður hann reiður. Hvernig getur mamma hans skilið hann eftir einan á meðan hún ferðast til áfangastaðar langt í burtu og ætlar aldrei að koma til baka?
Bergur eltir mömmu sína þegar hún leggur af stað en á leiðinni til Himnaríkis týnir hann sporunum hennar og týnist í Örvæntingarskóginum.
Hvernig kemst hann aftur út úr dýpsta og dimmasta skógi í heiminum?
Komið með Bergi í mikla ævintýraferð þar sem hann leitar að leiðinni heim, á þann stað þar sem móðir hans getur heimsótt hann í draumum hans og minningum og á eina heimilisfangið sem er á skrá fyrir hann hjá Himnaríki.
Björninn Bergur og Örvæntingarskógurinn er saga um sorg, en hún er einnig saga um von og um vináttuna sem er svo mikilvægt þegar mikið bjátar á. Þessi bók er ætluð fyrir börn og unglinga en ekki fyrir nýja lesendur. Bókinn er einnig fyrir þau sem eru týnd í sínum eigin örvæntingarskógi eftir að hafa misst einhvern nákominn. Umfjöllunin um söknuð er rituð af nærgætni og hentar því fyrir bæði yngri og eldri lesendur.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app