Heim › ...

Um bókina
Þórdís Þorgeirsdóttir fæddist í lágum torfkofa austur á landi á 18. öld, öld hjátrúar og hindurvitna. Afdrif hennar urðu efni í grimmilega þjóðsögu. En hver var hún, stúlkan sem sagan nefnir Bjarna-Dísu?
Hér fær Dísa sjálf orðið, bláfátæk en lífsglöð stúlka sem stritar frá barnæsku til að hafa í sig og á. Daginn sem hún heldur upp á heiði ásamt Bjarna bróður sínum er vonskuveður en skyldan kallar, þau eru vinnuhjú og þurfa að standa sig.
Á ískaldri heiðinni bíða þeirra átök við öfl náttúru og myrkurs.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app