
Berskjaldaður – Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást
Höfundur: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Flytjandi: Kristján Franklin Magnús
Um bókina
Einar Þór Jónsson vakti á sínum tíma þjóðarathygli fyrir skýra en hógværa framgöngu þegar hann steig fram sem talsmaður Geðhjálpar. Fáa grunaði þó að þessi látlausi og geðþekki maður ætti sér magnaða lífssögu að baki og háði á köflum sannkallaða baráttu fyrir lífi sínu. Einar Þór fæddist í Bolungarvík, barnabarn Einars Guðfinnssonar útgerðarmanns sem var allt í öllu í bænum og Einar litli því hluti af ættarveldinu. Hann varð þó ekki sá erfðaprins sem hann var borinn til heldur þurfti fljótlega að berjast fyrir sjálfum sér og takast á við erfiðan móðurmissi og samkynhneigð í litlu sjávarþorpi.
Síðar tók við hin átakanlega en um margt gleymda barátta samkynhneigðra við alnæmi. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir skrifar þessa áhrifamiklu baráttusögu af innsæi og næmi.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app