Heim › ...

Um bókina
Í um 400 ár hafa ábúendur á Loftsstöðum notið sérstakrar verndar Galdra-Ögmundar. Þau varðveita úr honum annan lærlegginn í lítilli glerkistu undir bókaskáp, og svo lengi sem beinið er á jörðinni ver það þau Tyrkjaránum, sjóskaða, náttúruhamförum og hvers konar mannraunum. En ein er sú vá sem enginn gat séð fyrir…
Þjóðsögur, flókin fjölskyldusambönd og erfðir mætast í þremur þáttum þar sem uppljóstrað er um rúmlega 70 ára gamalt leyndarmál.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen