Heim › ...

Um bókina
Undirstaða vellíðunar er sjálfsöryggi og góð tengsl við eigin tilfinningar, líðan og hegðun. Við þurfum einlægt að rýna í viðbrögð okkar líðan og hegðun. Alla ævina þurfum við að aðgæta og vinna úr tilfinningum okkar, styrkja sjálfsöryggið og sjálfsmyndina. Heiðarleiki gagnvart okkur sjálfum er lykilatriði í því hversu langt við komumst í aukinni sjálfsvirðingu og þroska. Einstaklingur með gott sjálfstraust finnur sátt við sjálfan sig og aðra.
Baujan kennir auðveldar og varanlegar aðferðir til að fara úr meðvirkni og öðlast innra öryggi og efla sjálfstraust. Baujan er tækni sem stuðlar að virkri og vakandi sjálfsvitund sem er forsenda aðgerða og breytinga á líðan. Um leið skerpir hún og eflir tilfinningagreind. Höfundur les.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app