Heim › ...
Barnið í skóginum eftir Hans Rosenfeldt - rafbók

Barnið í skóginum

Rafbók
Vaka-Helgafell

Um bókina

Hanna Wester snýr aftur til starfa hjá lögreglunni í Haparanda eftir sorgarleyfi og fær í fangið erfitt mál. Lík nýfædds barns hefur fundist úti í skógi og móðirin er horfin. En það eru fleiri en lögreglan sem leita að týndum mæðrum: leigumorðinginn Katja er komin aftur á kreik og rekur slóð tveggja barnshafandi kvenna sem eru á flótta undan kvölurum sínum.

Stjórnmálamaður í Stokkhólmi slær í gegn í innilegu sjónvarpsviðtali þar sem hann tilkynnir að nú sé loksins barn á leiðinni eftir áralanga baráttu við ófrjósemi. Sama kvöld hringir ókunn kona og hótar að koma upp um hver raunverulega gangi með barnið.

Barnið í skóginum er önnur bókin í Haparanda-flokki sænska verðlaunahöfundarins Hans Rosenfeldt. Hér beinir hann kastljósinu að ískyggilegu staðgöngumæðrunarbraski samtímans. Bókin hefur þegar verið seld til útgáfu í 25 löndum.

Nanna Brynhildur Þórsdóttir þýddi.

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.540 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.