Heim › ...
Bak við luktar dyr – sönn saga eftir Bengt-Åke Cras, Kristina Hansen, Agneta Cras - hljóðbók

Bak við luktar dyr – sönn saga

7 klst 56 mín
Lind & Co

Um bókina

Kristina er fjórtán ára gömul. Hún býr hjá föður sínum því samband hennar við móðurina hefur gengið brösuglega.

Foreldrarnir skildu eftir að faðirinn reyndi að drepa móður hennar. En dvölin hjá föðurnum veitir Kristinu allt annað en öryggi: hann nauðgar henni og hún verður eins konar óvígð barnabrúður hans. Kristina elur föður sínum tvö börn.

Bak við luktar dyr er sönn og áhrifamikil saga um stúlku sem verður fyrir kynferðisofbeldi og áreitni í mörg ár. Hér er ljósi varpað á svik foreldranna og aðgerðarleysi yfirvalda en jafnframt er rýnt í huga barnsins.

Síðast en ekki síst er þetta saga ótrúlegrar konu sem með einstökum viljastyrk og seiglu finnur aftur leiðina til lífsins og ástarinnar, þrátt fyrir að sú leið sé þyrnum stráð.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán