
Aung San Suu Kyi
Höfundur: Jakob F. Ásgeirsson
Flytjandi: Kristján Franklín Magnús
Um bókina
Í rúma þrjá áratugi var Aung San Suu Kyi, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels 1991, ein dáðasta kona heims. Barátta hennar fyrir mannréttindum og lýðræðisumbótum í heimalandi sínu, Búrma, vakti heimsathygli. Lýðræðishreyfing hennar vann afgerandi kosningasigur árið 1990 en herforingjastjórnin, sem réð þar ríkjum komst upp með að hundsa þau kosningaúrslit í tvo áratugi. Þúsundir óbreyttra borgara voru myrtar og allir helstu stjórnarandstæðingar fangelsaðir. Sjálfri var Aung San Suu Kyi haldið langdvölum í stofufangelsi á heimili sínu í Rangoon og meinað að hafa samskipti við fjölskyldu sína.
Í þessari bók segir Jakob F. Ásgeirsson sögu þessarar einstæðu hugsjónakonu sem á fáeinum vikum varð sameiningartákn þjóðar sinnar andspænis grimmilegri kúgun allsráðandi herforingjaklíku. Innbundin - 160 bls.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app