
Augu myrkurs
Um bókina
Ár er liðið frá því að Tina Evans missti litla drenginn sinn, Danny, í hörmulegu slysi. Söknuðurinn er búinn að vera nánast óbærilegur. En nú er tími til kominn að horfa fram á veginn. Þá fær Tina undarleg skilaboð. Dag einn tekur hún eftir tveimur orðum á krítartöflu í herbergi Dannys: EKKI DÁINN.
Í kjölfarið hefst ógnvænleg atburðarás ... Mögnuð háspennusaga sem fær hárin til að rísa á höfði lesendans. Dean Koontz er einn þekktasti spennusagnahöfundur heims. Bækur hans hafa selst í yfir 500 milljónum eintaka og verið þýddar á um 40 tungumál. „Ekki aðeins meistari okkar myrkustu drauma heldur einnig bókmenntalegur sjónhverfingamaður.“ – The Times „Koontz kann þá list að sannfæra lesandann um hið ómögulega ... komið ykkur vel fyrir og njótið.“ – Sunday Telegraph „Lýsingar Koontz minna á Dickens og fáir skáldsagnahöfundar standast honum snúning í að fá okkur til fletta í ofvæni frá einni blaðsíðu til þeirrar næstu.“ – Los Angeles Times „Ljóðrænn stílsmáti og sannfærandi persónusköpun ...
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app