Heim › ...

Allir fuglar fljúga í ljósið
Höfundur: Auður Jónsdóttir
Flytjandi: Svandís Dóra Einarsdóttir
10 klst 34 mín
Bjartur
Um bókina
Björt er ráfari, er í stopulli íhlaupavinnu en aðallega fer hún á milli staða í Reykjavík, fylgist með fólki og skráir hjá sér athuganir sínar. Hún leigir herbergi í hrörlegu húsnæði með öðru fólki á svipuðum stað í tilverunni, og hefur fastmótað form og rútínu á lífi sínu. Allt er í föstum skorðum – þar til hún sér Ólöfu Brá … og fær í kjölfarið bréf frá henni. Við það riðlast tilveran og lífssaga Bjartar brýst fram; vináttan við Veru, eitruð sambönd við Steingrím og Hálfdán – og smám saman flettist ofan af hinni ótrúlegu og dramatísku ævi hennar.
Hér í dásamlegum lestri Svandísar Dóru Einarsdóttur.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app