Heim › ...
Álfareiðin eftir Gunnar Theodór Eggertsson - rafbók

Álfareiðin

Rafbók
Vaka-Helgafell

Um bókina

Æsispennandi og nýstárleg álfahrollvekja!

Menntskælingurinn Líneik er spennt að búa til hlaðvarpsþátt í valáfanga í fjölmiðlafræði en þykir alveg glatað að hann eigi að vera um álfa. Og ekki nóg með það heldur neyðist hún til að vinna í hóp og situr uppi með bæði skrýtnu stelpuna og mesta slugsann í bekknum.

Perla og Jónki leyna þó á sér og fyrr en varir eru þau búin að grafa upp dularfullt þorp á Suðurlandi sem tengist álfum og virðist eiga sér blóðuga sögu. Þegar þríeykið mætir á staðinn rennur fljótt upp fyrir þeim að þorpsbúarnir hafa margt og miður fallegt að fela – og það getur reynst stórhættulegt að spyrja rangra spurninga.

Kynning

Hvernig virkar þetta?

  1. 1
    Kauptu bókina

    Greiddu einu sinni og bókin er þín að eilífu óháð áskriftarstöðu

  2. 2
    Sæktu Sagnaland appið

    Fáanlegt í App Store og Google Play

  3. 3
    Lestu hvar sem er

    Bókin birtist í bókahillunni þinni

-15%2.790 kr fyrir áskrifendur. Áskrifendur fá 15% afslátt af öllum bókum.