Heim › ...
Aflið sem bærist eftir Kolbrún Valbergsdóttir - hljóðbók

Aflið sem bærist

8 klst 25 mín
Vee Publishing

Um bókina

Þetta er ekki glæpasaga. Í henni eru engar hreinar hetjur eða fullkomnir skúrkar. Ekki í hinum hefðbundna skilningi. Raunar er hér ekkert merkilegt að sjá. Bara daglegt amstur miðaldra konu sem býr og starfar í Breiðholti. Ég veit ekki hverju ég gæti bætt við þetta. Jú, vissulega hefur hjónabandið sína kosti og galla, en ætli stærsta vandamálið mitt sé ekki pabbi. Það er að segja eftir að hann giftist nöðrunni, henni Auði Magnúsdóttur. Það er henni að kenna að ég leiddi hugann fyrst að því hvort að manneskja, sem ekki er morðingi, gæti raunverulega drepið. Hennar sök að stöðugt myrkari hugsanir mínar breytast jafnóðum í ólgu í blóðinu. Nei, ég má ekki láta þetta hafa svona mikil áhrif á mig. Ég verð bara að fitja upp á nefið og kreista fram bros, en það erum við afskaplega dugleg að gera á þessum bæ — líkt og þú munt uppgötva ef þú ákveður að hlusta á söguna mína. Lífið okkar gengur svo áfram sinn vanagang. Á meðan eiginmaður minn les heimsbókmenntir í rúminu á kvöldin þá skrifa ég mína eigin sögu.

Þetta er ekki glæpsaga. Held ég.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán