
Ævintýraeyjan - Uppgangur og endalok fjármálaveldis
Höfundur: Ármann Þorvaldsson
Flytjandi: Atli Rafn Sigurðarson
Um bókina
Í Ævintýraeyjunni – uppgangur og endalok fjármálaveldis – lýsir Ármann ótrúlegum vexti Kaupþings þegar það breyttist úr smáfyrirtæki í langöflugasta og verðmætasta fyrirtæki landsins á rúmum áratug.
Á sama tíma umbreyttist íslenskt viðskiptalíf og umsvif íslenskra fyrirtækja urðu forsíðuefni erlendis. Hér segir innanbúðarmaður frá mörgum stærstu viðskiptum Íslandssögunnar og því sem gerðist á bak við tjöldin. Ármann bregður nýju ljósi á fjölda þjóðkunnra einstaklinga, þar á meðal Björgólf Thor Björgólfsson, Davíð Oddsson, Hannes Smárason, Jón Ásgeir Jóhannesson, Bakkavararbræður, Kára Stefánsson og Sigurð Einarsson. Ármann segir einnig frá kynnum sínum af sumu ríkasta og þekktasta fólki Bretlands og má þar nefna tískudrottninguna Karen Millen, sjónvarpskokkinn Gordon Ramsey, auðjöfurinn Philip Green, Mike Ashley, eiganda Newcastle United, og Joe Lewis, eiganda Tottenham Hotspurs.
Í bókinni lýsir Ármann á eftirminnilegan hátt síðustu dögum Kaupþings – hvernig bankinn og íslenska fjármálakerfið féllu á nokkrum dögum haustið 2008. Þrátt fyrir alvarlegan undirtón iðar bókin af lífi og frásagnargleði. Ármann hefur næmt auga fyrir gamninu innan um alvöruna.
Efnisorð
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app