Heim › ...
Aðskotadýr eftir Unni Lindell - hljóðbók

Aðskotadýr

9 klst 46 mín
Ugla útgáfa

Um bókina

Það er sumar í Osló. Lilja og Betzy eru meðal kvenna sem fela sig fyrir ofbeldisfullum eiginmönnum á jarðaberjarbúgarði. Kona á sjötugasaldri rekur athvarfið af hugsjón. Hún gerir allt til að hjálpa. Eða hvað? Dag einn uppgötvar Lilja að í trjánum leynast eftirlitsmyndavélar. Og þegar sex ára drengur gengur í svefni eina nóttina sér hann dálítið hræðilegt í skóginum.

Unga lögreglukonan Lydia Winter, sem er kölluð Snø, er komin aftur til starfa með Hay og Marian Dahle. Fjörutíu ára gamalt mannshvarfsmál, þar sem nokkurra var saknað, leiðir Snø á jarðarbúgarðinn ...

UNNI LINDELL er sannkölluð glæpasagnadrottning Noregs. Hún hefur tvívegis hreppt hin virtu Riverton-verðlaun í Noregi og vinsælar sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar eftir sögum hennar sem m.a. hafa verið sýndar á RÚV.

„Ein flottasta og snjallasta röddin í heimi skandinavískra glæpasagna.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán