
Aðeins ein áhætta
Um bókina
Ambra Winter er blaðamaður á stærsta dagblaði Svíþjóðar. Henni er falið að skrifa um atburði í bænum Kiruna, nyrst í Svíþjóð. Þegar hún kemur í þetta litla samfélag vakna óþægilegar minningar. En það eru fleiri en hún sem þurfa að horfast í augu við fortíð sína. Meðal annars sérsveitarmaðurinn fyrrverandi sem sest hefur að í kofa úti í skógi og hún laðast að. Sænska ástarsagnadrottningin og femínistinn Simona Ahrnstedt sló rækilega í gegn með Teflt á tvær hættur-seríunni – syrpu ástarsagna úr nútímanum um sterkar konur, spennandi ráðabrugg og ástarævintýri.
Aðeins ein áhætta er þriðja og lokabókin í seríunni en hinar eru Aðeins ein nótt og Aðeins eitt leyndarmál. „Simona Ahrnstedt er ókrýnd drottning ástarsagnanna.“ – Femina „... ástir, launráð og ævintýri. Einstaklega notaleg lesning á köldum vetrarkvöldum.“ – Kirkus Review „Simonu Ahrnstedt tekst bæði að skrifa spennandi sögu og tvinna í hana margvísleg samtímamálefni. Minnir á Lizu Marklund nema söguþráðurinn er knúinn áfram af ástarævintýrum en ekki morðum.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app